U16 kvenna mætir Finnlandi á miðvikudag
U16 landslið kvenna mætir Finnlandi í loka leik sínum á Norðurlandamótinu í Svíþjóð á miðvikudag. Verður þetta þriðji leikur liðsins á mótinu.
Í fyrsta leiknum laut Ísland í lægra haldi fyrir Hollandi 1-0. Í leik tvö mætti Ísland Danmörku þar sem Ísland vann 5-0 stórsigur.
Þær Andrea Elín Ólafsdóttir, Freyja Stefánsdóttir og Katla Guðmundsdóttir skoruðu eitt mark hver og Hrefna Jónsdóttir skoraði tvö.
Eins og fyrr segir mætir Ísland Finnlandi á miðvikudag og hefst leikurinn klukkan 16:00 að íslenskum tíma.