Breytt dagsetning á úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna
Úrslitaleikurinn í Mjólkurbikar kvenna verður spilaður á Laugardalsvelli 11. ágúst kl. 19:00. Upphafleg dagsetning leiksins var 12. ágúst.
Breiðablik og Víkingur R. eigast við í úrslitaleiknum.
Breiðablik hefur 13 sinnum hampað titlinum en er þetta í fyrsta sinn í sögunni sem Víkingur kemst í bikarúrslit í kvennaflokki.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV.