Moli á ferð og flugi um landið
Verkefnið "Komdu í fótbolta með Mola" fór af stað í maí og heimsækir Siguróli Kristjánsson, betur þekktur sem Moli, sveitarfélög um allt land.
Hingað til hefur Moli heimsótt 26 staði í sumar, þar sem hann hefur hitt fyrir rúmlega 600 börn.
Markmiðið með Mola verkefninu er að efla áhuga á fótbolta hjá iðkendum og styðja við knattspyrnustarfið á hverjum stað fyrir sig.
Ef Moli er ekki búinn að boða komu sína í þitt félag eða í þinn bæ hafðu þá samband við Mola í netfangið moli@ksi.is