• mið. 21. jún. 2023
  • Mótamál

Dregið í 16-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins á fimmtudag

Dregið verður í 16-liða úrslit í Fótbolti.net bikarnum á fimmtudag í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli. Drátturinn verður í beinu streymi á KSÍ TV og hefst hann klukkan 11:00.

Síðustu leikirnir í 32-liða úrslitum fara fram í dag, miðvikudag. Fjórir leikir hafa þegar farið fram og eru KFA, Haukar, Árborg og KFK búin að tryggja sér farmiða í 16-liða úrslit. Í kvöld fara 11 leikir fram í keppninni.

Spilað verður í 16-liða úrslitum í júlí.

Fótbolti.net bikarinn