Nýir starfsmenn sumarið 2023
KSÍ hefur ráðið tvo starfsmenn á tímabundnum samningum og hafa þau bæði tekið til starfa.
Davíð Ernir Kolbeins hefur verið ráðinn í sumarafleysingar í samskiptadeild og mun hann starfa við fréttaflutning og efnisvinnslu fyrir miðla KSÍ, ásamt ýmsum öðrum verkefnum.
Þá hefur Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir verið ráðin á tímabundnum samningi í sérverkefni sem tengjast m.a. grasrótarmálum og samfélagslegum verkefnum.
KSÍ býður þau Davíð Erni og Gunnhildi Yrsu velkomin til starfa.