U15 kvenna mætir Portúgal á fimmtudag
U15 kvenna mætir Portúgal á fimmtudag í síðari vináttuleik þjóðanna.
Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á Youtube rás KSÍ.
Ísland vann fyrri leik liðanna 3-0 á þriðjudag þar sem Lilja Þórdís Guðjónsdóttir skoraði tvö mörk og Edith Kristín Kristjánsdóttir eitt mark.