Dregið í Þjóðadeild UEFA hjá A kvenna á þriðjudag
Dregið verður í fyrstu Þjóðadeild UEFA hjá A kvenna á þriðjudag.
Ísland verður þar í A deild og verður það í þriðja styrkleikaflokki þegar dregið verður. Drátturinn hefst kl. 11:00 að íslenskum tíma og verður hægt að sjá hann í beinni útsendingu á vef UEFA.
Frekari upplýsingar um dráttinn og fyrirkomulag keppninnar má finna á vef UEFA.
Styrkleikaflokkar A deildar
Fyrsti
England
Þýskaland
Frakkland
Svíþjóð
Annar
Spánn
Holland
Noregur
Danmörk
Þriðji
Ítalía
Belgía
Austurríki
Ísland
Fjórði
Sviss
Wales
Portúgal
Skotland