U23 kvenna mætir Danmörku á sunnudag
Mynd: Guðmundur Svansson
U23 lið kvenna mætir Danmörku í vináttuleik á sunnudag. Leikið verður í Helsingør og hefst leikurinn klukkan 13:00.
Sömu lið mættust í vináttuleik á föstudag þar sem heimakonur unnu 3-1 sigur. Ída Marín Hermannsdóttir skoraði mark Íslands.
Þórður Þórðarson er þjálfari liðsins og honum til aðstoðar er Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir.