Fyrsta umferð Mjólkurbikars karla klárast um helgina
Fyrsta umferð Mjólkurbikars karla klárast um helgina, dagana 30. mars - 2. apríl. Önnur umferð keppninnar hefst svo 6. apríl og lýkur 8. apríl.
Einum leik í keppninni er þegar lokið, en Árborg vann þar 1-0 sigur gegn Elliða og mætir Kára eða Létti í 2. umferð.
Einn leikur fer fram á fimmtudag, níu leikir á föstudag, sjö leikir á laugardag og sjö á sunnudag. Það verður því nóg um að vera á völlum landsins næstu daga.
Hér að neðan má sjá mótið á vef KSÍ: