Íslenskir dómarar dæma á Norður Írlandi
Íslenskt dómaratríó verður að störfum í norður írsku úrvalsdeildinni um helgina.
Helgi Mikael Jónasson, Egill Guðvarður Guðlaugsson og Kristján Már Ólafs munu dæma leik Cliftonville og Dungannon Swifts. Leikurinn fer fram á Solitude í Cliftonville 18. mars.
Þetta er liður í dómaraskiptum á milli landanna, en norður írskir dómarar munu koma í sumar til landsins og dæma hér.