Breytingar á skipan 4. og 5. deildar karla
Breytingar hafa orðið á skipan 4. og 5. deildar karla fyrir komandi keppnistímabil.
KÁ hefur verið flutt upp í 4. deild karla og tekur þar sæti Hamranna frá Akureyri sem hafa hætt við þátttöku.
Með fyrirvara um samþykki stjórnar KSÍ hefur mótanefnd KSÍ ákveðið að KM taki sæti KÁ í B-riðli 5. deildar karla.