Línur skýrast í Lengjubikarnum
Lengjubikarinn er í fullum gangi eins og venjulega á þessum árstíma og margir leikir framundan. Línur orðnar nokkuð skýrar í A deild karla, en aðrar deildir karla eru enn tiltölulega opnar, sem og allar deildir í Lengjubikar kvenna.
Í A-deild karla eru fjórir riðlar og efsta sæti hvers riðils gefur sæti í undanúrslitum. Valur, Víkingur R. og KA hafa þegar tryggt sér efsta sætið í sínum riðlum, en í riðli 2 er baráttan á milli ÍBV og Breiðabliks.
Í A-deild kvenna er leikið í tveimur 6 liða riðlum og efstu tvö lið hvors riðils um sig leika í kross í undanúrslitum. Eftir fyrstu umferðirnar eru Þróttur og Þór/KA með fullt hús í riðli 1, eins og Breiðablik og Stjarnan í riðli 2, en þessi lið mætast einmitt innbyrðis um helgina.
Mynd með grein: Mummi Lú