Úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna frestað
Mótanefnd KRR hefur ákveðið að fresta úrslitaleik Þróttar og Vals í meistaraflokki kvenna á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu að ósk beggja félaga.
Leikurinn átti að fara fram föstudaginn 24. febrúar í Egilshöll. Nýr leikdagur verður gefinn út eftir helgi.