Kórdrengjum vísað úr Lengjubikarnum 2023
Kórdrengjum hefur verið vísað úr Lengjubikarnum 2023. Liðið hefur ekki mætt til leiks tvo leikdaga í mótinu.
Í grein 35.2 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót segir: „Liði, sem ekki mætir til keppni tvo leikdaga í móti, skal vísað úr mótinu.“ Kórdrengjum hefur því verið vísað úr Lengjubikarnum 2023 og allir leikir liðsins í mótinu falla niður.