Kórdrengir taka ekki þátt í knattspyrnumótum sumarsins 2023
Mótanefnd KSÍ fundaði á föstudag um stöðu Kórdrengja og knattspyrnumóta sumarsins 2023 og stjórn KSÍ fundaði um málið í dag, laugardag. Stjórn KSÍ hefur ákveðið að taka þátttökutilkynningu Kórdrengja ekki til greina og byggir ákvörðun sína á grein 13.4 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót. Kórdrengir munu því ekki taka þátt í mótum sumarsins. Hér er um að ræða Lengjudeild karla og Mjólkurbikar karla. Ljóst er að þessi ákvörðun hefur áhrif í öllum deildum Íslandsmóts meistaraflokks karla, nema í Bestu deild. Mótanefnd KSÍ vinnur nú hörðum höndum að því að gera nauðsynlegar breytingar á mótum.
Breytingar á deildarskipan 2023
Vegna brotthvarfs Kórdrengja úr mótum sumarsins hefur stjórn KSÍ samþykkt eftirfarandi breytingu á deildarskipan Íslandsmóts meistaraflokks karla 2023:
Lengjudeild karla
Ægir flyst í Lengjudeild karla í staða Kórdrengja.
- Ægir var í 3. sæti 2. deildar karla 2022.
2. deild karla
KFG flyst í 2. deild karla í stað Ægis.
- KFG var í 3. sæti 3. deildar karla 2022.
3. deild karla
Hvíti riddarinn flyst í 3. deild karla í stað KFG.
- Hvíti riddarinn var í 4. sæti 4. deildar karla 2022.
- Ýmir hefur nú þegar færst upp um deild í stað Einherja.
4. deild karla
Hamar flyst í 4. deild karla í stað Hvíta riddarans.
- Hamar var með 2. bestan árangur liða (meðal stigaskor) í 3. sæti riðlakeppni 4. deildar karla 2022.
5. deild karla
Álafoss flyst upp í 5. deild karla í stað Hamars.
Vegna breytinga á þátttöku félaga í 5. deild verður riðlaskipting deildarinnar endurskoðuð. Nánari tilkynning síðar.
Utandeild karla
Vegna breytinga á þátttöku félaga verður opnað að nýju fyrir skráningar í utandeild. Frekari upplýsingar verða birta eins fljótt og kostur er.