U19 kvenna unnu sigur gegn Póllandi
U19 kvenna mættu í dag Póllandi í fyrsta leik sínum á æfingamóti í Portúgal. Ísland vann 4-2 sigur.
Sædís Rún Heiðarsdóttir fyrirliði liðsins skoraði tvö mörk og Katla Tryggvadóttir og Snædís María Jörundsdóttir sitt markið hvor.
Næsti leikur liðsins er gegn heimakonum í Portúgal á laugardaginn kl. 17:00 og verður leikurinn í beinu streymi á KSÍ TV.