KSÍ C 2 þjálfaranámskeið í febrúar 2023
KSÍ mun halda tvö KSÍ C 2 þjálfaranámskeið í febrúar. Það fyrra verður helgina 4.-5. febrúar og það síðara helgina 11.-12. febrúar.
Þátttakendur fá aðgang að kennsluforritinu Canvas viku áður en námskeiðið hefst. Þá viku þurfa þátttakendur að nýta til undirbúnings, horfa á fyrirlestra, svara spurningum úr einstaka fyrirlestrum og undirbúa umræðuefni.
Ath. – skráningu lýkur því viku fyrir námskeið.
Það er 16 ára aldurstakmark á námskeiðið, en þau sem verða 16 ára á árinu eru gjaldgeng á námskeiðið. Þátttökurétt hafa þjálfarar sem setið hafa KSÍ C 1 þjálfaranámskeið
Skipt verður í tvo hópa báðar helgarnar og seinni helgina (11.-12. febrúar) er stefnt að því að hafa kynjaskipt í hópum. Við hvetjum því stúlkur sem áhuga hafa og vilja frekar vera með öðrum stúlkum í hóp en í blönduðum hóp, að skrá sig þá helgi.
Dagskrá námskeiðsins helgina 4.-5. febrúar er að finna hér að neðan. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
Dagskrá
Námskeiðsgjald er 25.000 kr.
Markmið KSÍ C þjálfaranámskeiðsins er að gefa þjálfurum tæki og tól til að:
-Búa börnum og unglingum öruggt umhverfi til að stunda knattspyrnu
-Skipuleggja æfingar
-Efla færni sína í þjálfun/kennslufræði
-Bjóða iðkendum upp á æfingar við hæfi
Skráning:
4.-5. febrúar (skráningu lýkur 27. janúar)
11.-12. febrúar (skráningu lýkur 3. febrúar)
Ath. af gefnu tilefni fylgja hér fyrir neðan reglur fræðslunefndar KSÍ um mætingu á þjálfaranámskeið:
Fjarvist vegna KSÍ: (t.d. leikir í móti og landsliðsæfingar) að hámarki 4 kennslustundir. 5 kennslustundir þýðir nýtt námskeið.
Fjarvist af öðrum ástæðum: að hámarki 2 kennslustundir. 3-4 kennslustundir þýðir verkefni. 5 kennslustundir þýðir nýtt námskeið.
Vinsamlegast athugið að mót á vegum KSÍ eru Lengjubikar, Bikarkeppni KSÍ og Íslandsmót. Önnur mót eru ekki á vegum KSÍ.