Vinnufundur með leyfisfulltrúum félaga haldinn
Árlegur vinnufundur með endurskoðendum og leyfisfulltrúum félaga var haldinn í höfuðstöðvum KSÍ miðvikudaginn 11. janúar sl.
Fundurinn, sem stóð yfir í u.þ.b. 60 mínútur, var að venju sóttur af fulltrúum félaga sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ.
Á fundinum fór Haukur Hinriksson, leyfisstjóri KSÍ, yfir praktískt atriði og þær breytingar sem orðið hafa á leyfisreglugerð KSÍ fyrir leyfistímabilið 2023. Birna María Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Deloitte, yfir áhersluatriði við skil á fjárhagsgögnum á nýju leyfistímabili og Arnar Bill Gunnarsson, deildarstjóri fræðsludeildar KSÍ, fór yfir hlutverk yfirþjálfara og kröfur vegna menntunar markmannsþjálfara.
Fyrir neðan má nálgast glærukynningar frá vinnufundi 2023.
Glærukynningar:
Leyfisreglugerð – útgáfa 5.1 - Áhersluatriði vegna yfirferðar á fjárhagslegum þáttum
Starf yfirþjálfara yngri flokka í knattspyrnu
Leyfisreglugerð KSÍ - Breytingar fyrir leyfistímabilið 2023