Ferðasjóður íþróttafélaga - Umsóknarfrestur til og með 9. janúar
Skilafrestur umsókna í Ferðasjóð íþróttafélaga rennur út á miðnætti mánudaginn 9. janúar nk.
Íþrótta- og ungmennafélög hafa því tíma út mánudaginn nk. til að skila umsóknum en á miðnætti lokast kerfið og verður ekki tekið við umsóknum í sjóðinn eftir þann tíma.
Frekar upplýsingar má sjá á vef ÍSÍ.