Bókin Íslensk knattspyrna 2022 er komin út
Bókin Íslensk knattspyrna 2022 er komin út í 42. skiptið í röð en hún hefur komið út samfleytt frá árinu 1981. Sögur Útgáfa gefa út bókina sem er stærri en nokkru sinni fyrr, 288 blaðsíður í stóru broti og skreytt með um 400 myndum af leikmönnum og liðum. Víðir Sigurðsson er höfundur bókarinnar en hann hefur skrifað hana samfleytt frá árinu 1982.Í bókinni er sagt ítarlega frá Íslandsmótunum 2022 í öllum deildum karla og kvenna, sem og yngri flokkunum, bikarkeppninni, Evrópuleikjunum og vetrarmótunum. Þá er landsleikjum ársins í öllum aldursflokkum gerð góð skil, sérstaklega leikjum kvennalandsliðsins í lokakeppni Evrópumótsins, og fjallað sérstaklega um íslenska knattspyrnufólkið sem leikur erlendis.
Í bókinni er ítarleg tölfræði um leikmenn og lið, sjá má liðsskipan allra liða í öllum deildum í meistaraflokkum karla og kvenna, leikjafjölda leikmanna í efri deildum, leikjahæstu karla og konur, marka- og leikjahæstu karla og konur í deildakeppni hér og erlendis ásamt mörgu fleiru.
Viðtöl í bókinni eru við Söndru Sigurðardóttur, markvörð Íslands- og bikarmeistara Vals og íslenska landsliðsins, og Höskuld Gunnlaugsson, fyrirliða Breiðabliks.
Í ár er bókin gefin út með tveimur kápum. Á kápu hefðbundnu útgáfunnar er mynd af Íslands- og bikarmeisturum Vals í kvennaflokki og sú útgáfa er í almennri sölu og dreifingu og fæst í bókaverslunum Eymundsson um allt land. Einnig er hægt að panta hana, ásamt eldri bókum, hjá Sögur Útgáfa, pontun@sogurutgafa.is eða 557 3100.
Í sérútgáfu er mynd af Íslandsmeisturum Breiðabliks í karlaflokki og sú bók er eingöngu til sölu hjá Breiðabliki en upplýsingar eru á heimasíðu félagsins, www.breidablik.is.