Austurland eignast tvo dómara með réttindi til að starfa í efstu deild
Á vefsíðunni Austurfrétt var nýlega fjallað um að Austurland hafi á síðustu misserum eignast tvo knattspyrnudómara sem búa á svæðinu og hafa réttindi til að dæma í efstu deild. Dómararnir eru þeir Antoníus Bjarki Halldórsson og Guðgeir Einarsson, sem báðir hafa verið valdir til þátttöku á svokölluðu CORE-námskeiði UEFA í Sviss.
Smellið á hlekkinn hér að neðan til að skoða nánar. Lengri útgáfu af fréttinni er að finna í vikublaðinu Austurglugganum.
Skoða fréttina á Austurfrétt.is
Mynd með grein: Austurfrett.is