Byrjendanámskeið fyrir dómara í Grindavík
Mynd: Mummi Lú
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið hjá Grindavík í veislusalnum Gjánni miðvikudaginn 7. desember kl. 18:00.
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Grindavík og hefst kl. 18:00. Námskeiðið stendur yfir í um tvær klukkustundir og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.
Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi. Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. 100% viðvera á námskeiði skilyrði.
Skráning er hafin á magnus@ksi.is