KSÍ auglýsir eftir leyfisstjóra
KSÍ óskar eftir að ráða öflugan einstakling í fullt starf leyfisstjóra á skrifstofu sambandsins. Starfið heyrir undir yfirlögfræðing KSÍ.
Helstu verkefni:
- Umsjón með leyfiskerfi KSÍ og starfar sem leyfisstjóri. Í því felst að aðstoða aðildarfélög í leyfisferli og yfirfara gagnaskil þeirra.
- Standa undir kröfum UEFA til skrifstofu KSÍ vegna leyfiskerfis félaga í Evrópu
- Stuðla að framþróun leyfiskerfis KSÍ. Í því felst að eiga í samskiptum við, veita ráðgjöf og hafa samráð við aðildarfélög og aðra hagsmunaaðila.
- Umsjón mannvirkjamála ásamt mannvirkjanefnd KSÍ.
- Persónuverndarfulltrúi.
- Heilindamál.
- Aðstoð/afleysingar við aga- og úrskurðarmál, reglugerðir og önnur úrskurðarmál.
- Aðstoð/afleysingar við yfirferð leikmannasamninga og afgreiðslu félagaskipta.
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við framkvæmdastjóra eða yfirlögfræðing.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem lögfræðimenntun, fjármálamenntun eða önnur menntun.
- Góð þekking á knattspyrnu og bakgrunnur innan knattspyrnuhreyfingarinnar.
- Þekking á leyfiskerfi KSÍ er kostur.
- Þekking á knattspyrnumannvirkjum er kostur.
- Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi gott vald á íslensku og ensku.
- Hæfni til framsetningar og greiningar á flóknum gögnum
- Góð þekking á forritum Office og hvers kyns tölvuvinnslu
- Góð samskiptafærni, skipulagshæfni, frumkvæði og nákvæmni í starfi.
Upplýsingar veitir Haukur Hinriksson yfirlögfræðingur hjá KSÍ í síma 510-2900.
Umsóknum ásamt sakarvottorði skal skilað með tölvupósti til haukur@ksi.is eigi síðar en 9. desember nk. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. febrúar.