• þri. 25. okt. 2022
  • Landslið
  • U17 karla

U17 karla - Frábær 3-0 sigur gegn Norður Makedóníu

U17 karla vann flottan 3-0 sigur gegn Norður Makedóníu í fyrsta leik sínum í fyrstu umferð undankeppni EM 2023.

Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði tvö mörk og Kjartan Már Kjartansson eitt. Ísland leiddi 2-0 í hálfleik og bætti svo þriðja markinu við í byrjun síðari hálfleiks. Á sama tíma vann Frakkland 4-0 sigur gegn Lúxemborg. 

Næsti leikur Íslands í riðlinum fer fram á föstudag þegar liðið mætir Lúxemborg. Leikurinn hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma og verður hægt að sjá hann í beinni útsendingu á vef knattspyrnusambands Norður Makedóníu.

Bein útsending