Úrskurður um heimaleikjabann Víkings felldur úr gildi
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur tekið fyrir mál nr. 3/2022 - Knattspyrnudeild Víkings gegn Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ - og kveðið upp dóm.
Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar frá 12. október 2022 um heimaleikjabann knattspyrnuliðs Víkings R. í mfl. karla í 1 leik er felldur úr gildi. Sekt knattspyrnudeldar Víkings R. að upphæð kr. 200.000 stendur óhögguð.