U15 karla - Sigur gegn Lúxemborg
U15 karla vann 2-0 sigur gegn Lúxemborg í öðrum leik liðsins á UEFA development tournament í dag, fimmtudag.
Mörkin komu ekki fyrr en undir lok leiks. Mihajlo Rajakovac kom Íslandi yfir á 79. mínútu og Tómas Óli Kristjánsson innsiglaði sigurinn í uppbótartíma.
Strákarnir eiga einn leik eftir á móti. Hann verður gegn Slóveníu á sunnudagsmorgunn kl. 8:00. Leikurinn verður í beinu streymi á KSÍ TV.