U15 karla - sigur eftir vítaspyrnukeppni gegn Norður Írlandi
U15 karla vann sigur eftir vítakeppni gegn Norður Írlandi í fyrsta leik sínum á UEFA Development Tournament.
Tómas Óli Kristjánsson, Karan Gurung og Viktor Bjarki Daðason skoruðu mörk Íslands, en leikurinn endaði 3-3 eftir venjulegan leiktíma. Ísland vann svo 3-2 sigur í vítaspyrnukeppni.
Mótið fer fram í Slóveníu og mætir Ísland Lúxemborg á fimmtudag og Slóveníu á sunnudag. Allir leikirnir verða í beinni útsending á KSÍ TV.