Breiðablik Íslandsmeistari karla 2022
Breiðablik er Íslandsmeistari í meistaraflokki karla 2022. Þetta varð ljóst á mánudagskvöld eftir úrslitin í viðureign Stjörnunnar og Víkings. Ekkert lið getur nú náð Blikum að stigum og fagna þeir því Íslandsmeistaratitlinum í meistaraflokki karla í annað sinn í sögu félagsins þegar þrjár umferðir eru óleiknar í Bestu deild karla.
Til hamingju Breiðablik!
Baráttan milli liðanna í neðri hluta Bestu deildar karla er enn í fullu fjöri og á þessum tímapunkti alls ekki ljóst hvaða lið fá það hlutskipti að falla í Lengudeildina. Næstu leikir í bæði efri og neðri hluta eru um komandi helgi.