• lau. 08. okt. 2022
  • Landslið
  • U15 kvenna

U15 kvenna - Ísland mætir Litháen á sunnudag

U15 ára landslið kvenna mætir Litháen á sunnudag í síðasta leik sínum á UEFA Devlopment Tournament.

Mótið fer fram í Póllandi og vann Ísland fyrsta leik sinn á því 5-2 gegn Tyrklandi, en tapaði svo 3-6 í öðrum leik sínum á mótinu. Litháen gerði 3-3 jafntefli við Pólland í fyrsta leik, en tapaði svo 5-0 gegn Tyrklandi.

Leikurinn hefst kl. 08:00 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með beinni textalýsingu á Facebook vef KSÍ.

Facebook vefur KSÍ