Sex marka jafntefli í hörkuleik hjá U17 kvenna
U17 landslið kvenna gerði í dag 3-3 jafntefli í hörkuleik við Ítalíu í fyrstu umferð undankeppni EM 2023. Riðillinn fer fram á Ítalíu og var heimaliðið dyggilega stutt af áhorfendum.
Ítalska liðið var meira með boltann í leiknum ogen að öðru leyti var jafnræði með liðinum sem bæði áttu góðar sóknir og marktækifæri. Ítalía skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og reyndust það einu mörkin fyrir hlé. Emelía Óskarsdóttir minnkaði muninn í síðari hálfleik áður en ítalska liðið náði aftur tveggja marka forystu. Okkar stúlkur lögðu þó ekki árar í bát og jöfnuðu metin af miklu harðfylgi með mörkum frá Katrínu Rósu Egilsdóttur og Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttur, sem skorðu með einnar mínútu millibili seint í leiknum.
Niðurstaðan jafntefli í hörkuleik og gott veganesti fyrir íslenska liðið, sem mætir Sviss á föstudag í næstu umferð, en svissneska liðið lagði það franska með tveimur mörkum gegn einu í dag. Leikur Ítalíu og Íslands var sýndur í beinni vefútsendingu á KSÍ TV.