U21 karla - Eins marks tap gegn Tékklandi
U21 karla tapaði 1-2 fyrir Tékklandi í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti á EM 2023.
Sævar Atli Magnússon kom Íslandi yfir með marki úr vítaspyrnu á 26. mínútu. Tékkar jöfnuðu metin á 33. mínútu og staðan var jöfn í hálfleik.
Tékkland komst yfir á 70. mínútu og tryggði sér sigurinn.
Síðari leikur liðanna fer fram í Tékklandi þriðjudaginn 27. september.
Mynd: Mummi Lú