Valur mætir Slavia Prag í Meistaradeild kvenna á miðvikudag
Mynd - Hulda Margrét Óladóttir
Valur mætir Slavia Prag í undankeppni Meistaradeildar kvenna á miðvikudag.
Leikurinn fer fram á Valsvelli og hefst hann kl. 17:00. Seinni leikur liðanna fer svo fram miðvikudaginn 28. september í Prag.
Það lið sem vinnur viðureignina fer áfram í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, en Breiðablik komst alla leið þangað á síðasta tímabili.