A kvenna - Leikur gegn Hollandi á þriðjudag
Íslenska kvennalandsliðið er komið til Hollands þar sem það mætir heimakonum í síðasta leik sínum í undankeppni HM 2023 á þriðjudag.
Liðið æfði saman í Hollandi í gær, sunnudag, eftir ferðalag frá Íslandi. Í dag æfir liðið á keppnisvellinum Stadion galgenwaard í Utrecht.
Leikurinn gegn Hollandi hefst klukkan 18:45 að íslenskum tíma. Með sigri tryggir Ísland sig á HM 2023 sem fram fer í Ástralíu og Nýja Sjálandi næsta sumar.