A kvenna - Lausir miðar á Holland-Ísland
Ísland mætir Hollandi í lokaleik sínum í undankeppni HM 2023 á þriðjudag í Hollandi. Leikurinn fer fram á Stadion Galgenwaard í Utrecht og hefst hann klukkan 18:45 að íslenskum tíma og 20:45 að staðartíma í Hollandi. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV.
Búist er við 250-300 Íslendingum á leikinn. Enn þá eru lausir miðar í U-hólfið þar sem flestir Íslendingar munu sitja. Hægt verður að kaupa miða á vellinum.