Fræðsluviðburður: Einelti, samskipti og forvarnir
Fimmtudaginn 15. september mun KSÍ bjóða upp á fyrirlestur sem ber heitið Einelti, samskipti og forvarnir. Fyrirlesari er Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, en Vanda hefur víðtæka þekkingu og reynslu af viðfangsefninu.
Fyrirlesturinn verður kl. 19:30-22:00 í höfuðstöðvum KSÍ, á 3ju hæð. Frítt er á fyrirlesturinn.
Vanda mun kenna fyrirlesturinn á Egilsstöðum 30. október, Akureyri 1. desember og á Ísafirði 23. febrúar. Þessir viðburðir verða nánar auglýstir síðar og þá með skráningarhlekk.
Viðfangsefni:
- Einelti og samskiptavandi
- Jákvæðir og neikvæðir leiðtogar
- Liðsandi
- Foreldrasamskipti
Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur að vera komnir með góða innsýn í:
- Hvernig á að koma auga á, fyrirbyggja og taka á einelti og samskiptavanda í knattspyrnuliðum.
- Hvernig hægt er að efla iðkendur sem jákvæða leiðtoga
- Hvernig efla má liðsanda
- Hvernig stuðla má að jákvæðum foreldrasamskiptum
Þjálfarar með KSÍ/UEFA þjálfararéttindi fá 4 endurmenntunarstig fyrir að sitja fyrirlesturinn. KSÍ hvetur einnig fólk í stjórnum knattspyrnudeilda og barna- og unglingaráða til að skrá sig á fyrirlesturinn.
Skráningarhlekkur á fyrirlesturinn í Reykjavík, 15.september