FH og Víkingur R. mætast í úrslitum Mjólkurbikars karla
FH og Víkingur Reykjavík mætast í úrslitaleik Mjólkurbikars karla á Laugardalsvelli laugardaginn 1. október.
Undanúrslitaleikirnir fóru fram í vikunni. Á miðvikudag tók Breiðablik á móti Víkingum þar sem Víkingar höfðu betur 0-3. Erlingur Agnarsson skoraði tvö mörk og Karl Friðleifur Gunnarsson skoraði eitt fyrir Víking.
Á fimmtudag tók FH á móti KA. FH vann 2-1 sigur þar sem Oliver Heiðarsson og Davíð Snær Jóhannsson skoruðu mörk FH og Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði mark KA.
Mynd með frétt: Mummi Lú