Ísbjörninn hefur leik í forkeppni Evrópukeppninnar í Futsal á miðvikudag
Ísbjörninn leikur á miðvikudag fyrsta leik sinn í forkeppni Evrópukeppni félagsliða í Futsal.
Liðið mætir þá Kampuksen Dynamo frá Finnlandi í fyrsta leik, en í riðlinum eru einnig FC Encamp frá Andorra og KMF Titograd frá Svartfjallalandi. Leikurinn hefst kl. 15:30 og verður hægt að fylgjast með beinni textalýsingu á vef UEFA.
Það lið sem lendir í efsta sæti riðlsins fer áfram í næstu umferð keppninnar. Ísbjörninn mætir KMF Titograd á fimmtudag og svo FC Encamp á laugardag. Hægt er að fylgjast með gangi mótsins á vef KSÍ.