A kvenna - Miðasala á Ísland-Belarús hefst í dag
Miðasala á leik Íslands gegn Belarús í undankeppni HM 2023 hefst í dag klukkan 12:00. Leikurinn fer fram föstudaginn 2. september og hefst hann klukkan 17:30.
Íslenska liðið er í öðru sæti riðilsins með 15 stig, tveimur stigum á eftir Hollendingum sem eru efstir. Liðið sem endar í toppi riðilsins fer beint á HM og það lið sem endar í 2. sæti fer í umspil um laust sæti á HM.
Leikurinn við Belarús er næst síðasti leikur liðsins í undankeppni HM sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar.