Miðasala á úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna hefst á mánudag
Miðasala á úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna á milli Breiðabliks og Vals hefst mánudaginn, 22. ágúst, kl. 12:00.
Leikurinn fer fram laugardaginn 27. ágúst á Laugardalsvelli og hefst hann kl. 16:00.
Miðasalan fer fram á vef tix.is og er hægt að kaupa miða í sæti með stuðningsmönnum Breiðabliks eða Vals.
Frítt er á leikinn fyrir 16 ára og yngri, en sækja þarf miða fyrir þau í miðasölukerfinu.
Tenglar inn á miðasöluna verða birtir á miðlum KSÍ og félaganna á mánudag.