U17 karla - 1-2 tap gegn Tyrklandi
U17 ára landslið karla tapaði 1-2 gegn Tyrklandi í öðrum leik sínum á Telki Cup í Ungverjalandi.
Stígur Diljan Þórðarson skoraði mark Íslands í leiknum á 69. mínútu, en liðið hefur nú tapað báðum leikjum sínum á mótinu. Ísland mætir Króatíu á laugardag í lokaleik sínum á mótinu og hefst sá leikur kl. 11:00.