Íslenskir dómarar dæma í Norður Makedóníu
Íslenskir dómarar dæma í Sambandsdeild UEFA í Norður Makedóníu á morgun.
Ívar Orri Kristjánsson verður dómari leiksins og honum til aðstoðar verða Birkir Sigurðarson og Jóhann Gunnar Guðmundsson. Þorvaldur Árnason verður fjórði dómari.
FC Shkupi frá Norður Makedóníu tekur á móti Ballkani frá Kósovó. Leikurinn er fyrri leikur liðanna í umspili um laust sæti í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar.