Undanúrslit í Mjólkurbikar kvenna hefjast á morgun
Mynd: Hulda Margrét
Undanúrslit í Mjólkurbikar kvenna fara fram á morgun og laugardag.
Á morgun klukkan 19:45 tekur Stjarnan á móti Val á Samsung vellinum í Garðabæ. Á laugardaginn taka Selfyssingar á móti ríkjandi Bikarmeisturum Breiðabliks klukkan 14:00 á Jáverk vellinum á Selfossi.
Úrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvelli laugardaginn 27. ágúst klukkan 16:00.