Breiðablik og Víkingur R. spila heimaleiki í Sambandsdeild UEFA á fimmtudag
Þriðja umferð í forkeppni Sambandsdeildar UEFA hefst á fimmtudaginn. Tvö íslensk lið eru í keppninni og eiga þau bæði heimaleik á fimmtudag.
Breiðablik tekur á móti İstanbul Başakşehir frá Tyrklandi og Víkingur R. tekur á móti Lech Poznan frá Póllandi. Leikirnir hefjast klukkan 18:45.
Síðari leikir þessara liða fara fram 11. ágúst.