Víkingur R. komnir áfram í Sambandsdeild UEFA
Víkingur Reykjavík heimsótti The New Saints í Wales í síðari leik liðanna í annarri umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í gær. Leiknum lauk með 0-0 jafntefli og fer Víkingur því áfram á samanlögðum árangri eftir að hafa unnið fyrri leikinn 2-0.
Næsti leikur Víkings í Sambandsdeildinni fer fram 4. ágúst.