Seinni leikir Breiðabliks og KR á fimmtudag
Breiðablik og KR leika seinni leiki sína í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildar UEFA á fimmtudag og bæði leika þau á heimavelli.
Á Kópavogsvelli mæta Blikar UE Santa Coloma frá Andorra kl. 19:15. Fyrri leik liðanna lauk með eins marks sigri Breiðabliks. KR-ingar taka á móti pólska liðinu Pogon Szczecin, sem vann 4-1 sigur í fyrri viðureigninni í Póllandi. Leikurinn er á KR-velli og hefst kl. 18:15
Mynd: Mummi Lú.