Íslenskir dómarar í Belfast
Íslenskir dómarar verða að störfum í Sambandsdeild UEFA á fimmtudag. Þorvaldur Árnason er dómari á leik Cliftonville FC frá Norður-Írlandi og FC DAC 1904 Dunajská Streda frá Slóvakíu, en liðin mætast í Belfast. Aðstoðardómarar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon, og fjórði dómari verður Ívar Orri Kristjánsson.