Fyrsti leikur Íslands á EM er á sunnudag
A landslið kvenna leikur á sunnudag fyrsta leik sinn á EM 2022 þegar liðið mætir Belgum í Manchester. Leikurinn hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á RÚV. Einnig verður hægt að fylgjast með gangi mála á samfélagsmiðlum KSÍ (@footballiceland). Íslenska liðið færði sig frá Crewe yfir til Manchester á laugardag, æfði á keppnisvellinum og gistir á hóteli í miðborg Manchester.
Ísland og Belgía hafa mæst þrisvar sinnum áður í A landsliðum kvenna. Hvort lið um sig hefur unnið einn leik og einu sinni gerðu liðin jafntefli.