Íslensk lið á útivelli í Evrópumótum í vikunni
Íslensk lið verða í eldlínunni í Evrópumótum félagsliða karla í vikunni. Íslands- og bikarmeistarar Víkings ríða á vaðið á þriðjudag þegar þeir mæta sænska stórliðinu Malmö ytra í forkeppni Meistaradeildarinnar, en seinni leikuriinn fer svo fram á Víkingsvelli viku síðar. Víkingar hafa þegar farið í gegnum eina umferð forkeppninnar þar sem þeir unnu sigra gegn Levadia Tallinn og Inter Escaldes.
KR og Breiðablik hefja leik í undankeppni Sambandsdeildarinnar á fimmtudag og byrja bæði á útivelli. Breiðablik leikur í Andorra gegn UE Santa Coloma og KR mætir pólska liðinu Pogon Szczecin. Seinni leikirnir fara fram viku síðar á Íslandi.
Mynd: Mummi Lú.