• fim. 23. jún. 2022
  • Evrópuleikir

Víkingur R. spilar Evrópuleik á morgun í Víkinni

Víkingur R. spilar á morgun gegn Inter Club d’Escaldes frá Andorra í úrslitaleik umspils fyrir undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn hefst klukkan 19:30 á Víkingsvelli og fer miðasala fram í gegnum appið Stubb. Eingöngu er leyfilegt að selja miða í sæti og því takmarkað magn í boði. Víking opnar klukkan 18:00.

Víkngur sigraði FC Levadia Tallinn 6-1 síðastliðinn þriðjudag og tryggði sér þar með sæti í úrslitaleiknum. Sigurvegarar í leiknum á morgun mæta Malmö frá Svíþjóð í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu 2022/2023.