12 þjálfarar útskrifuðust með Afreksþjálfun unglinga þjálfararéttindi
Laugardaginn 21. maí útskrifuðust 12 þjálfarar með KSÍ Afreksþjálfun unglinga (UEFA Elite A Youth) þjálfaragráðu. Eins og nafnið gefur til kynna er efni námskeiðsins helgað því hvernig vinna skuli með efnilegum leikmönnum á aldrinum 15-19 ára. Einungis þjálfarar sem hafa KSÍ A/UEFA A þjálfararéttindi geta setið námskeiðið. Yfirþjálfarar félaga innan leyfiskerfis KSÍ þurfa að hafa Afreksþjálfun unglinga þjálfararéttindi.
Eftirtaldir þjálfarar útskrifuðust:
- Aðalsteinn Aðalsteinsson
- Alexandre M. Fernandez Massot
- Alfreð Elías Jóhannesson
- Aðalsteinn Jóhann Friðriksson
- Björn Bjartmarz
- Christopher Thomas Harrington
- Jakob Leó Bjarnason
- Jón Óli Daníelsson
- Páll Einarsson
- Sigurður Víðisson
- Sólrún Sigvaldadóttir
- Þórarinn Engilbertsson